Skilareglur Levi's
Viðskiptavinum Levi's á Íslandi býðst að skila eða skipta vöru innan 14 daga frá kaupum gegn framvísun kassakvittunar. Varan skal þó ávallt vera í upprunalegu ástandi og með upprunalegum verðmerkingum. Ef greitt er með kreditkorti er ýmist hægt að fá vörunni skipt, hana endurgreidda inn á kreditkort eða útgefið gjafabréf uppá upphæðina.
Ef um gjöf er að ræða merkjum við með gjafamiða. Hann gildir ekki sem kassakvittun, og því er varan ekki endurgreidd. Vörunni má skipta samkvæmt merktum dagsetningum á miðanum og ýmist taka út aðra vöru eða fá útgefið gjafabréf sem gildir í 1 ár.
Útsöluvöru er hvorki hægt að skila né skipta.
Nærbuxum er hvorki hægt að skila né skipta.
Benda má á að í lögum um neytendakaup nr. 48/2003 er meginreglan sú að skilaréttur er ekki fyrir hendi við kaup á ógallaðri vöru, og verslunum ber einungis skilda til að bjóða skipti innan 14 daga frá kaupum, þ.e. ef varan er ónotuð og með upprunalegum merkingum.